Vefsíða? Klárt mál.

Þú færð fallega og hraða vefsíðu sem fólk finnur. Ég sé um allt hitt — hýsingu, Google og tæknilegu hliðina. Þú þarft ekki að kunna neitt.

Frítt og óskuldbindandi tilboð. Ég svara samdægurs.

Þú kannt þitt fag. En það finnur þig enginn.

Fólk mælir með þér og þú hefur nóg að gera. En um leið og einhver nýr leitar að þér á Google er fátt að finna — kannski gömul Facebook-síða. Þá leitar það einfaldlega annað.

Vandamálið

Engin vefsíða — eða gömul og hæg sem lítur illa út í símanum. Google veit ekki af þér, og þú missir af fólki sem var tilbúið að versla við þig.

Lausnin

Ég smíða vefsíðu handa þér sem er hröð, lítur vel út í símanum og segir nákvæmlega það sem fólk þarf að vita. Svo kem ég þér á Google. Þú þarft ekkert að gera — ég sé um allt. Klárt mál.

Áskrift

Vefsíða og Google — á föstu mánaðarverði.

Fagleg vefsíða sem fólk finnur, fyrir lágt fast mánaðargjald. Enginn stofnkostnaður.

Engin binding. Ekki ánægð(ur)? Þú getur hætt hvenær sem er.

Grunnur

14.900 kr. á mán.

+ vsk

Fyrir einyrkja og lítil fyrirtæki sem vilja vera til á netinu og finnast á Google.

  • Ein-síðu vefsíða, farsímavæn
  • Tengiliðaform
  • Google Business Profile uppsett
  • Hýsing, SSL og öryggisuppfærslur innifalið
  • Smávægilegar breytingar
Byrjaðu núna
Vinsælast

Vöxtur

24.900 kr. á mán.

+ vsk

Fyrir fyrirtæki sem vilja vaxa og skera sig úr á netinu.

  • Allt í Grunni — og að auki:
  • Fjölsíðu vefsíða
  • Grunn-SEO
  • Samfélagsmiðlatengingar
  • Myndvinnsla
Byrjaðu núna

Sérverkefni

Fyrir þá sem vilja eiga vefsíðuna sína sjálfir, eða þurfa eitthvað stærra og sérsniðið — vefverslun, flóknari virkni eða sérhönnun. Greitt samkvæmt tilboði.

Fáðu tilboð

Þú þarft aldrei að hugsa um tæknina.

Ég sé um hýsingu, viðhald og breytingar — það er alltaf innifalið í áskriftinni.

Öll áskriftarverð eru á mánuði og án vsk.

Af hverju Google

Fólk leitar á Google áður en það hringir. Vertu þar sem það leitar.

Flestir Íslendingar leita á Google eða Google Maps áður en þeir hringja eða mæta. Með Google Business Profile birtist þú með opnunartíma, símanúmeri, leiðsögn og umsögnum — efst þegar fólk í nágrenninu leitar.

  • Þú birtist á Google Maps

    Fólk finnur þig og fær leiðsögn beint að dyrunum.

  • Efst í leit í nágrenninu

    Þegar einhver nálægt þér leitar að þinni þjónustu.

  • Umsagnir sem byggja traust

    Stjörnur og umsagnir fá fólk til að velja einmitt þig.

Þú þarft engan dýran auglýsingapakka. Google Business Profile er ókeypis — ég sé um að setja það rétt upp fyrir þig. Klárt.

[Þitt fyrirtæki]

4,9 37 umsagnir

Þjónusta í þínu bæjarfélagi

Opið núna · Lokar 17:00

Leiðsögn Hringja

Ferlið

Þetta er einfalt.

  1. Við ræðum saman

    Þú segir mér frá fyrirtækinu. Ég kem með tillögu og fast verð. Frítt og óskuldbindandi.

  2. Þú sendir mér efni

    Texta og myndir — eða ég hjálpa þér með það. Þú þarft ekki að vera tæknileg(ur).

  3. Ég smíða

    Ég hanna, smíða og kem þér á Google. Þú færð að sjá útkomuna og við fínpússum hana saman.

  4. Þú ferð í loftið

    Vefsíðan fer í loftið á þínu léni — og þá er það klárt.

Skilmálar

Skýrt og einfalt.

  • Áskriftin er mánaðarleg og engin binding — þú getur sagt upp hvenær sem er.
  • Klárt sér um hýsingu og utanumhald á áskriftarvefsíðum. Þegar áskrift lýkur fer vefsíðan úr loftinu.
  • Eigir þú þitt eigið .is-lén heldur þú því.
  • Innifalið í áskrift: hýsing, SSL, öryggisuppfærslur og smávægilegar breytingar. Stærri breytingar geta verið aukalega.
  • Sérverkefni eru utan áskriftar — þar átt þú vefsíðuna þína samkvæmt tilboði.

Hafðu samband

Sláðu á þráðinn. Ég sé um framhaldið.

Sendu mér nokkur orð um fyrirtækið þitt, þá sendi ég þér fast verð til baka — alltaf samdægurs. Þér að kostnaðarlausu og án skuldbindingar.

Eða sendu mér póst beint:

hallo@klart.is